Fyrirtækið vill fá enn eina heimildina til að taka milljarðalán. Alltaf þurfum við að bakka öll lánin þeirra með ríkisábyrgð en það stráir á móti "styrkjum" á önnur ríkisfyrirtæki, söfn og ýmsa menningarviðburði, býður ókeypis sumarkúrsa í háskólum og hvaðeina, sér til vinsældaauka. Hvað, er það svo skuldugt og fjárþurfi eftir allt saman?
Samkvæmt frumvarpi meirihluta efnahags- og skattanefndar er Landsvirkjun yfirlýsingaglatt um fjármagnsþörf sína: "6570 milljarða kr. þurfi á yfirstandandi ári til að mæta endurfjármögnunarþörf fyrirtækisins og til að geta ráðist í nýjar virkjunarframkvæmdir". Hverjar? Enn eru framkvæmdir í biðstöðu, samkvæmt upplýsingafulltrúanum. Hvaða framkvæmdir er þar átt við? Og skyldu þær koma okkur við?
Flokkur: Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 19:35 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.