Nú, áttum við að borgar skattana fyrir þá?

Það er eitthvað alvarlega bjagað við þá hugsun að fyrirtæki sleppi við skatta. Skattpeningarnir fara í hafnarframkvæmdir, vegaframkvæmdir o.s.frv. Ef þeir vilja ekki borga skatta, hverjir eiga þá að borga þá? Mér er spurn. Allir nema þeir og álfyrirtækin? Enn og aftur almennt launafólk og aldraðir, kannski?
mbl.is Skattarnir afar íþyngjandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég sé hvergi í þessari frétt að þeir vilji ekki borga skatta

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.9.2009 kl. 15:40

2 Smámynd: GRÆNA LOPPAN

Hver er fyrirsögnin?

GRÆNA LOPPAN, 23.9.2009 kl. 16:37

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er hætt við að þú skiljir lítið gang mála ef þú byggir þekkingu þína á fyrirsögnum.

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.9.2009 kl. 17:16

4 Smámynd: GRÆNA LOPPAN

Þú skilur lítið í blaðamennsku ef þú heldur að fyrirsagnir séu saklausar...

GRÆNA LOPPAN, 23.9.2009 kl. 18:11

5 Smámynd: GRÆNA LOPPAN

"Skattarnir hefðu þurft að vera hvetjandi til að aðilar kæmu og sæktu um leyfi. Þess í stað eru þeir mjög letjandi. Við teljum alveg ljóst að það þurfi að fara fram breytingar á skattakerfinu hér áður en næsta umferð ferð fram."

GRÆNA LOPPAN, 23.9.2009 kl. 18:16

6 Smámynd: GRÆNA LOPPAN

Ekki nóg með það. Nú hefur fyrirsögninni verið breytt og "afar" er orðið "gríðarlega".

Nokkrum tímum seinna kemur ný útgáfa með frekari skýringum : Stighækkandi gjald óháð kostnaði

GRÆNA LOPPAN, 23.9.2009 kl. 18:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband